Monday, January 30, 2006

Nýr dagur- ný tækifæri

Give a little bit
Give a little bit of your love to me
Give a little bit
I'll give a little bit of my love to you
There's so much that we need to share
So send a smile and show you care

Þessi texti að ofan er brot úr gömlu lagi e. Supertramp sem VISA hefur notað í nýlegri auglýsingu sem ber slagorðið Nýr dagur- ný tækifæri... Þetta er góð auglýsing.

Já í dag var svona dagur, - svona dagur þar sem maður veit að maður er kominn yfir erfiðasta hjallann í einhverju verkefni sem maður hefur tekið sér fyrir hendur. Þessi dagur var bjartur og hlýr í Reykjavík, blár himinn og sólin skein í heiði. Ég skellti mér í sund og það var notalegt. Nú er kominn sá tími að fólk fer að bera kroppana sína í sundlaugunum og verður útitekið. Sól fer hækkandi á lofti og brosin verða breiðari á andlitum almennings. Já- þetta kallast jákvæðni.
Vorboðinn ljúfi og besta vinkona mín, flugan, var ekki langt undan og lenti næstum á vatnsborðinu í 8-pottinum í Árbæjarsundlauginni. Ég hefði bjargað henni.

Það er þessi lykt úti núna... þessi vorlykt. Hún er samblanda af mold og einhvers konar gróðurlykt. Ólýkt haustlyktinni sem getur verið skelfandi og kvíðavaldandi, og svo vetrarlyktinni sem getur verið ótrúlega frískandi á sinn kalda hátt, þá er vorlyktin hlý. Hún er hlý og ber með sér eftirvæntingu. Eftirvæntingu þess að fá að hoppa og skoppa út í sumarið eftir að vissum áfanga hefur verið náð. Í dag fylltist ég þessari eftirvæntingu á leið niður Ártúnsbrekkuna að sundferðinni lokinni. Hún kætti mig. Og ég brosti........ :)

K8

4 Comments:

Blogger jonas said...

stundum hugsar maður ekki um lífið nema þegar maður virkilega þarf þess. lærir ekki að meta það fyrr en maður sér hvað maður hefur og hvað maður gæti misst - eða fengið. skrýtið hvernig lífið lætur mann líða áfram - stundum sofandi (að feigðarósum?) og stundum lifandi (á vit ævintýra?). Merkilegt þetta líf. Og hvernig það kviknar...

1:15 PM  
Blogger Katrín said...

Já.... þetta er alveg einstaklega merkileg tilviljun þetta líf,... en einungis tilviljun.

K8

4:18 PM  
Anonymous Anonymous said...

Að mínu mati er lífið alls ekki einungis tilviljun. Vegna þess að hver ákvörðun sem við tökum hefur sínar afleiðingar, og framhaldið er oft afleiðing ákvarðana okkar, ekki tilviljana!

Hver hefur ekki hugsað, hvernig væri lífið ef ég hefði gert þetta en ekki hitt??

5:03 PM  
Blogger Katrín said...

Lífið sem slíkt, þ.e. lífsformið og tilvist okkar í alheiminu er tilviljun. Líf kviknaði útfrá ákveðnum skilyrðum sem voru fyrir hendi á vissum tíma. ÞAÐ er tilviljunin sem ég átti við. (Ég tel það svo vera vegna lífssýnar minnar)

En á hinn bóginn veistu að ég er algjörlega þeirrar skoðunnar að hver sé sinnar eigin gæfu smiður... við erum ekki strengjabrúður og að því leytinu til er ákvarðanataka okkar fullmeðvituð- við getum þó ekki stjórnað veðrinu :)

K8

3:09 PM  

Post a Comment

<< Home