Saturday, October 21, 2006

Dans á þyrnirósum?


Brunablöðrur, opin sár, blóðneglur, brotnar neglur, kjötflyksur, marblettir, beyglaðar tásur útaf táskóm í gegnum árin, bólgnar tásur, þroti, bjúgur, sviti, skítur. Fæturnir mínir- ég. Gólfið var sumsé blóðgað á síðustu æfingu. Og þetta er ástandið ofan á ristunum- ég vil minna á að það eru iljarnar sem eru í stöðugri snertingu við gólfið og verða því fyrir meira álagi. Svo er þetta einungis brot af líkamanum á mér. Eftir eru allir hinir staðirnir, bakið, mjaðmir, hryggurinn, axlirnar, lófarnir, olnbogar, hné, ökklar sem fá nákvæmlega sömu útreið á hverjum degi í skólanum. Ég taldi þessa mynd nægilega lýsandi en ég hef semsagt tekið mér á hendur skemmtilegt og spennandi verkefni sem lýkur ekki fyrr en í vor. Embrace the pain Katrín, make use of the pain. Stundum verður maður bara að taka Pollýönu á þetta. Svo hefur orðið "fótsnyrting" öðlast algerlega nýja merkingu fyrir mér. Spurning hvort það taki því að fara- það er alltaf sama harkan og það koma bara nýjar blöðrur á morgun.

Lífið er ekki alltaf dans á rósum, stundum er það bara hardcore dans á hörðum gólfdúk sem brennir þig og svíður... en það er og verður alltaf dans:)

K8

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

SVAAAAAKKAAALLEGGT !!!!
þvílík harka í gellunni :) þú veist að maður kann alltaf betur að meta það sem maður öðlast með erfiðleikum frekar en það sem kemur auðveldlega.
Þú ert hörkutól að standa i þessu.
Respect!

B.

3:56 PM  
Blogger �sgeir said...

hæ sæta...

jamms... þetta er ekki fallegt... i feel your pain.... and mine

5:34 PM  
Blogger Katrín said...

Við erum öll harðjaxlar!!!! :)

Lengi lifi harkan! húrra - húrra - húúúúúúúrrrrrrraaaaa !!!!!!

K8

7:14 PM  
Blogger Arni said...

Ég hélt að boltasparkið hefði gert mér eitthvað. Þú ert að komast í afreksmannatölu hjá mér. Ég er ánægður að sjá þetta. Blóð, sviti og tár er slóðinn sem leiðir til árangurs. Áfram nú.

5:09 AM  
Blogger fló said...

Djiiiiiisus madur minn!

Vonandi ad thad verdi eitthvad eftir fyrir thig til ad standa a thegar upp er stadid!

Uuu, thessi var nu godur hja mer..

Eda kannski bara ekki, kannski bara svona medal.... :/

Plu.


Astarkvedjur.

1:19 PM  

Post a Comment

<< Home